föstudagur, maí 25, 2012
Lokaspretturinn hafinn
Þetta hjóla í vinnunadæmið er að skemma körfuboltann fyrir mér ;-) já og veiðina. Ég er svo þreyttur á kvöldin að ég nenni fáu. En ég fór á körfuboltaæfingu í gær og meikaði það í gegnum hana alla. Shit hvað það var gaman ;-)
Nú er bara að komast í smá veiði um helgina.
fimmtudagur, maí 24, 2012
Ædol
Eurovision á þriðjudag, Idol í gær og svo Eurovision í kvöld og á laugardag. Allt að verða vitlaust í tónlistarlífinu. Ég horfði meira á Idol í gær en ég ætlaði. Ætlaði mér að fara snemma að sofa en svo sogast maður inn í þetta. En ég dreif mig í háttinn samt áður en þættinum lauk. Sá úrslitin í morgun og er mjög sáttur.
miðvikudagur, maí 23, 2012
Eurovision
Horfði á Eurovision í gær með börnunum. Sigurpáll Valmar var ekkert voðalega áhugasamur en stelpurnar voru að fíla þetta alveg í botn. Þær héldu með Kýpur fyrir utan Ísland auðvitað. Bæði löndin komust áfram og þær rosalega glaðar með það :-) Mér fannst líka gaman að lauma að þeim smá upplýsingum um löndin t.d. höfuðborgir og að þau væru hluti af stærra landi sem var til þegar við Signý vorum ung t.d. fyrrum ríki Júgóslavíu. En þetta var rosalega gaman og Salný Kaja tók sig alvarlega sem yfirpoppara og poppaði ofan í okkur ;-)
þriðjudagur, maí 22, 2012
Hjólað í vinnuna í uppnámi
Ég lenti í alveg ótrúlegum vandræðum á leiðinni heim í gær. Ég ætlaði að hjóla og ná í strákinn og svo heim sem er um 7.3 km leið. En nei ég komst tjaaaaa segjum 10 metra áður en festingin á hjólavagninum læsti sig í teinana á hjólinu þannig að allt stóð fast og ég gat ekki hjólað, ekki losað vagninn og allt var í fokki. Ég fékk tengdapabba til að koma með kerruna sína svo ég kæmi þessu dóti heim og hann kom með strákinn með sér. Ég skoðaði þetta svo um kvöldið og náði að losa einn bolta og teinana úr þannig að þeir voru heilir. Festingin á hjólavagninum virðist heil fyrir utan eina aukafestingu sem ég held að ég geti reddað en þetta virkar án hennar. Lán í óláni þar en ég herti festinguna almennilega með topplykli til að þetta myndi ekki gerast aftur. Svo hjólaði ég í vinnuna í morgun en án kerrunnar. Var bara með hana í gær því ég var með aukaföt stráksins í bakpoka og það var bara auðveldara að hafa bakpokana okkar í vagninum heldur en að klyfja mig. En já ég hélt að dekkið væri ónýtt og það tæki einhvern tíma að fá nýtt dekk og skipta um það og að hjólað í vinnuna dæmið hjá mér væri bara búið en þetta reddaðist og ég er aftur með í leiknum ;-)
mánudagur, maí 21, 2012
Helgin ágæt bara
Gerði lítið á föstudag annað en að vera með börnunum mínum.
Á laugardag var ég í því að setja saman nokkra IKEA skápa. Já bílskúrinn alveg að verða tilbúinn eins og ég sé hann fyrir mér :-) er orðinn virkilega spenntur að sjá þetta allt tilbúið. Já og svo vídeókvöld með börnunum um kvöldið.
Í gær var ég svo með börnin í sundi um morguninn og var allan daginn hjá systur minni í heimsókn og borðaði hádegismat og kvöldmat hjá henni. Börnin okkar léku sér allan daginn í blíðunni og við chilluðum á nýja pallinum hennar. Mjög kósý.
Já og svo vil ég benda á þennan link og húsið sem Afi minn Geirmundur Guðmundsson og Amma mín Lilja Torfadóttir keyptu þegar mamma var lítil og bjuggu þar í mörg mörg ár.
föstudagur, maí 18, 2012
Líkaminn í fokki
Árshátíð á miðvikudagskvöldið, dansaði eins og geðsjúklingur allt kvöldið og fram á nótt. Labbaði svo heim með konunni.
Keppti á körfuboltamóti frá 11-17 daginn eftir án þess að vera með marga skiptimenn í 5 leikjum.
Hjólaði í vinnuna í morgun.
Shit hvað ég er að misbjóða líkama mínum.
miðvikudagur, maí 16, 2012
Feðgar í baði
Sigurpáll Valmar var heldur betur í vondu skapi í gær þegar ég kom heim. Ég reyndi margt til að róa hann á endanum datt mér í hug að bjóða honum að fara í bað. Hann vildi það og að ég kæmi með honum. Við skelltum okkur því í flotta baðkarið okkar sem við notum alltof sjaldan. Við feðgarnir lékum okkur saman og hann komst í mjög gott skap. Svo eftir baðið var hann ljúfur sem lamb og var ofsalega góður hjá mér þar til hann sofnaði alveg þétt upp við mig. Alveg ómetanlegt að eiga svona grísling ;-)









